Fólk sem er að leita að þér
Ólíkt flestum auglýsingum truflar Google ekki neinn. Þú birtist hjá þeim sem eru þegar að leita að vörunni eða þjónustunni sem þú býður.
Heimild: Statcounter, júlí 2026.
Ólíkt flestum auglýsingum truflar Google ekki neinn. Þú birtist hjá þeim sem eru þegar að leita að vörunni eða þjónustunni sem þú býður.
Birtingin sjálf kostar ekkert. Þú borgar þegar einhver smellir og kemur inn á vefinn þinn.
Leitarvélabestun (SEO) getur tekið marga mánuði. Google auglýsingar geta skilað heimsóknum samdægurs.
Auglýstu bara á þínu svæði, á þeim tímum sem þú ert opinn og í þeim tækjum sem skila mestu.
Google Shopping fyrir netverslanir, YouTube, Google Maps og birtingarauglýsingar á vefjum.
Þú sérð hvaða leitarorð skila símtölum, fyrirspurnum og sölu, og hvaða orð eru bara að kosta peninga.
Þú greiðir aðeins þegar einhver smellir á auglýsinguna og ákveður sjálfur hámark á dag. Verð á hvern smell fer eftir samkeppni um leitarorðin. Auglýsingaféð fer beint til Google og þóknun fyrir uppsetningu og umsjón er sér.
Google auglýsingar skila sýnileika strax en hætta að birtast þegar þú hættir að greiða fyrir þær. Leitarvélabestun tekur lengri tíma en skilar varanlegri umferð. Bestur árangur næst oft með því að vinna að hvoru tveggja.
Já. Hægt er að takmarka auglýsingar við ákveðin svæði, til dæmis höfuðborgarsvæðið eða ákveðið bæjarfélag, og jafnvel við ákveðna tíma dags.
Með mælingum í Google Ads og Google Analytics 4 sérðu hvaða auglýsingar og leitarorð skila símtölum, fyrirspurnum og sölu. Þú færð reglulegar skýrslur á mannamáli.